The Fabulous Life of Svavar, Veigar and Sigurpáll =)
Síður sem vert er að skoða! =)
23.08.2006 00:23:32 / Sigurpáll

Nýtt blogg!!! ný síða!!!

Erum komnir með nýja síðu í gang! nennum þessu blog.central.is ekki lengur!! Þetta er eitthvað svo jólalegt!!

Endilega kíkið við á

vatnsglas.bloggar.is !!!!!

kv. Sigurpáll, Veigar og Svavar!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 02:15:40 / Veigar Þór

Jæææjja.....

Þá er komið að því við erum hættir með

þessa síðu hér því miður...:S en við

munum opna aðra síðu þriðjudagskvöldið

22 ágúst ! :D þannig að fylgist vel með

hér því hún verður auglýst á þessari

síðu!! :D

 

Kveðja Veigar, Sigurpáll og Svavar!! :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 22:28:27 / Sigurpáll

Fjer!

Þar sem að það virðist allur heimurinn spenntur bíða eftir því hvað gerist næst á þessari síðu þá ákvað ég aðeins að breyta um útlit... án þess að spyrja hvorki kóng né prest (þ.e.a.s. Veigar eða Svavar)

Annars lítið sem ég ætlaði að skrifa núna! en ef einhver veit um 3-5 herbergja íbúð í bænum sem er til leigu á svona 100-120 þúsund íslenskar krónur á mánuði, þá megiði alveg láta mig vita! Okkur vantar íbúð, við erum fjórir sem hvorki reykjum né drekkum :p

Nóg í bili,
Sigurpáll


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 20:22:16 / Sigurpáll

Feikna stemmari!

Góðann og blessaðann daginn!!

Takk fyrir fína helgi!

Já helgin var fín í alla staði! Skellti mér norður á Akureyri til að taka þar þátt í lífi og fjöri sem fylgdi hátíðinni einni með öllu! Held samt að ég hafi hreinlega ekki étið eina einustu pylsu!

Þetta var ekkert nema fjör í alla staði. Held að ég hafi farið af stað úr Sandgerði um 10 leytið á föstudagsmorgun, átti reyndar að vera fyrr en bara hafði mig ekki á lappir! sótti JP í bænum og við byrjuðum á því auðvitað að fara í Áfengis og tóbaksverslun ríkisins og brunuðum svo bara af stað, meira þurftum við ekki! Komum við í Varmahlíð og Sauðarkróki á leiðinni, þó svo að krókurinn sé ekki alveg í leiðinni. Þegar við komum í Varmahlíðina um 4 leytið kíktum við á afa gamla í lundi, en þegar þangað var komið sáum við að Sigurpáll gamli sat bara á sumbli ásamt öðrum gömlum! brunuðum svo á krókinn til að kaupa bjór fyrir sigvalda því það var víst allt uppselt á Eyrinni!

Ég nenni nú eiginlega ekki að fara í einhver smáatriði! Skelltum okkur á ball með Greifunum á föstudag, þar sem við JP áttum alveg gólfið, vorum einir á því fyrsta hálftímann eða svo :P á laugardeginum skelltum við okkur á Sálina í Sjallanum og fórum aftur þangað á sunnudeginum þar sem Skítamórall var að spila... Það má alveg segja það að maður hafi náð sér í smá ölvun og þá sérstaklega á sunnudeginum! Rankaði við mér um hádegi á mánudaginn þegar Jóhann rak mig út í bíl svo við gætum farið af stað því við þurftum að ná í Runólf bróðir á króknum kl 14:30, ég stóð upp úr ,,Tjaldinu" og fann þá að ég var alveg blindfullur ennþá :P nokkuð gott sko... En já ,,tjaldið" var snilld! smelli inn mynd af því hér þegar Jóhann er búinn að senda mér þær!

En eins og ég segi, þá var þarna fullt af fólki, og brjálað fjör, maður hitti fullt af fólki sem maður þekkir og hefur ekki séð lengi, en þó hitti maður töluvert meira af fólki sem maður þekkti ekki neitt! Menn eins og Valtýr Björn og Gaui Þórðar létu sig ekki vanta, sá Gaua kallinn meika það í ,,brekkusöng" og Valtýr var sem trylltur á dansgólfinu á Sjallanum!

Var svo kominn heim, vel þreyttur og skítblankur um 8 leytið á mánudagskvöld, í rauninni mikið fyrr en ég átti von á :P

En held að þetta sé nóg í bili, hvet nú strákana til að fara að henda eitthverju hér inn!

Kv. Sigurpáll

lag dagsins - Ásbjörn Morthens - Nýbúinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 18:24:19 / Sigurpáll

Glæsileg færsla hér á ferð!!!

Guten abend! (eða hvernig sem það er skrifað!)

Er ekki málið að henda hér inn skínandi stuttri færslu, ég meina það er svo stutt síðan síðasta færsla var sett hér inn :p ákvað að henda henni hér inn því það virðist einhvernveginn vera þannig að þegar maður er Home Alone leiðist manni alltaf svo hrikalega mikið! er bara að bíða eftir Kef-Gri á sýn svo maður getipantað sér flatböku!

Ég hef eiginlega ekki hugmynd hvað ég á að setja hérna inn.

Helgin var nokkuð góð, föstudagurinn átti að vera rólegur rúntur bara. Skelltum okkur út á rúnt, ég, veigar og svavar meira að segja. Það er þó ekki frásögufærandi svosem, nema hvað að um eitt eða hálf tvö fengu strákarnir SMS um að það væri útkall, brunað var í Sandgerði þar sem farið var niðrí stöð og beint niðrá bryggju þannig að Sigurpáll varð bara að gera svo vel að röllta heim þaðann, sem var svosem ágætt. En jæja, ætlaði aðeins að kíkja í tölvu áður en ég sofnaði en neinei hálftíma eftir að ég kom heim þá hringir Veigar, þeir búnir í útkalli og vilja fara að fagna því. Jújú ekkert mál ég fer með, brunum í keflavíkina og beint á H-punktinn, þar er djammað og djúsað (þeir þ.e.a.s.), og haldiði að ég hafi barasta ekki verið að keyra, eitthvað sem kemur ekki oft fyrir :p en þrátt fyrir það þá skemmti ég mér bara alveg konunglega!

Laugardagurinn var nú ekki síðri! skelltum okkur til Svavars sem var einn heima, mömmu-, pabba- og auðurslaus... ég byrjaði að sturta í mig og svavar líka en veigar sem ætlaði sér að verða peðölvaður endaði á að drekka ekki sopa og keyra! eftir að hafa setið heima hjá svavari til svona rétt rúmlega akkurat eitt, hálf tvö (annars man ég ekki hvað klukkan var) og spjallað, rifist og skemmtilegheit þá skelltum við okkur af stað, ég, svavar, veigar, raggi og þráinn, já haldiði að þráinn hafi ekki bara birst allt í einu og ætlaði að rukka nágrannaskattinn og því var lítið annað að gera en að draga hann með í keflavíkina. Sá hann svo að vísu ekki meira eftir að við komum þangað... eða þó það getur vel verið... beint á h-punktinn og djammað og djúsað til morguns, eða þangað til sumir rölltu af stað heim...

Sunnudagurinn fór í þynnku og vinnu.... fínasta helgi, djamm föstudag og laugardag, 24 tímar í yfirvinnu.... flott maður... ekki allir sem djamma á launum eins og strákarnir sögðu :p

Vonandi bara að næsta helgi verði eins fjörug, á reyndar ekki von á öðru, verslunarmannahelgin... ég og jóhann pétur ætlum að skella okkur á Akureyrin til arons, reikna nú með að fleiri ætli, skilst að veigar, albert og fleiri ætli líka að skella sér... um að gera að drífa sig bara norður... ef fólk vill kíkja með eru alveg tvö sæti laus hjá okkur jóa, áætluð brottför er föstudagurinn 4.ágúst kl 7:16 og áætluð heimkoma mánudagurinn 7.ágúst seint (vegna hugsanlegrar þynnku)...

En jæja þetta ætti að vera komið nóg, nú er bara að sjá hverjir skoða þetta blogg, efast um að það séu margir sem gera það enn vegna þess hve langt er síðan síðasta færsla var, en nú er um að gera að breyta því strákar og fara að henda inn færslum reglulega... ættum að hafa reglu á þessu bara, að lágmarki ein færsla á mann einu sinni í viku! hvernig hljómar það? mér líst vel á það!

En nóg í bili,
kv. Sigurpáll

lag dagsins: Basshunter - Boten Anna


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 17:48:11 / svavar

HEHE!!

VÁ HVAÐ ÞESSI SÍÐA ER AÐ SÖKKA HEHE HVERNIG VÆRI NÚ AÐ FARA GERA EITTHVAÐ SMÁ MEIRA Í BLOGGHEIMINUM DRENGIR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!:):)

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 11:50:39 / svavar

im alive

Gaman af því já:) ég sá að spalli kom með snilldarfærslu hérna á undan ég ákvað því að blogga í fyrsta skipti í þessum mánuði held ég:):):) En ég hef svo sem lítið að segja sko ég er byrjaður að vinna aftur:):) ég er frekar fegin að vera laus við skólan.
En það kemst voða fátt in í kollin á mér þessa daga nema einhver pólitík og drasl sem ég nennie ekki að látaalla heyra:):):)  En éin ábending http://www.ungtfolk.bloggar.is  massa góð síða hehe:):) en svo hvet ég fólk til að taka frá fimmtudagskvöldið og mæta á mamma mía og horfa á undankeppnina það verður tilboð á bjór og eikkað sniðugt:):) En svo á föstudagskvöldið er þvílíkt kvöld á mamma mia ótrúlegt en þar mun ein af betri hljómsveitum okkar Sandgerðinga koma saman aftur eftir ríflega fjögurra ára stopp og aðeins í þetta eina skipti:):):):) og þetta kvöld verða lika fleiri stórkostleg atriði:)  en þið verðið að fylgjast með auglysingum á næstunni en munið að taka kvöldin tvö frá:o:o
kveð í bili

SVAVAR!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 23:42:27 / Sigurpáll

Ný færsla! JEI!!!

Jæja, væri ekki fínt að fá eins og eina færslu takk.

Hún verður nú samt ekki löng reikna ég með, annars er aldrei að vita. :)
Voða lítið að gerast hjá manni þessa dagana, maður situr bara allann daginn, alla daga og ,,lærir" undir þessi blessuðu próf.

Búinn í þremur og á 4 eftir. Sem er reyndar stórfurðulegt, þar sem að mér finnst ég vera búinn með helling og eiga geðveikt lítið eftir, reyndar gæti skýringin verið sú að þessi þrjú sem ég er búinn með tóku viku en þessi fjögur sem ég á eftir, eru bara tveir dagar, mánudagur og miðvikudagur. Annars eru þau búin að vera alveg ágæt, jarðfræðin gekk vonum framar, enskan gekk og franskan líka, verða samt engar framúrskarandi einkunnir held ég. Svo er það saga og félagsfræði á mánudag og þýska og íslenska á miðvikudag, svo er maður bara kominn í sumarfrí, held ég verði lítið að vinna fyrr en 15.júní þegar ég kem heim frá búlgaríu, iss það verður fjör. Annars er kominn tími á að hætta að blaðra um þetta lærdómskjaftæði.

Annars var ég ýkta duglegur um daginn, ákvað að sækja um skólavist næsta vetur, meiri skóli, meiri skóli, maður virðist ekki geta hætt, alveg sama hvað maður reynir hahaha, nei segi svona, held að það sé alveg eins gott að drífa þetta bara af í staðinn fyrir að draga þetta eitthvað sem að endar svo með því að maður nenni ekki í skóla aftur. En allavega sótti um í Kennaraháskóla Íslands, á þroskaþjálfabraut :p og því fylgir eflaust að flytja í höfuðborgina og þar af leiðandi vantar mig íbúð eða eitthvað í bænum, og jafnvel einhvern til að leigja með :P ef einhver býður sig fram í að leigja með mér endilega látið mig vita svo við getum þá farið að finna íbúð :p

En jæja þetta er orðið ágætt er það ekki, ég ætla að reyna að láta ekki líða svona langt á milli blogga næst, ég tek það fram að ég REYNI bara, en jæja ætla að halda áfram að skrifa um félaga Sigmund Freud og kenningu hans um Sjálfið fyrir félagsfræðina.

Tjá Tjá!
Sigurpáll


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 15:32:30 / Veigar Þór

26 apríl - 1 maí 2006

Herðu já var komin með fult héddna áðan þegar ég ÓVART lokaði glugganum....:S En ég byrja þá bara attur! :haha: Ætla næu samt að byrja á því að nefna það að ég er á fullu að setja inná síðuna t.d. í brandarar sem er nýtt á síðunni... http://www.blog.central.is/2_bananas?page=viewPage&id=797708 og svo er ég líka alltaf að setja eikkað nýtt inn í Snildar linkar og myndir http://www.blog.central.is/2_bananas?page=viewPage&id=638808 endilega að skoða það líka! Og ef þið hafið eikkað skemmtilegt sem á heima í öðrumhvorum flokknum endilega látið mig vita! :haha: En ég ætla núna sona aðeins að segja frá síðustu helgi/viku :D

Miðvikudagur 26 apríl: Hann var voða rólegur til að byjra með skóli og auðvitað próf! :D skólin að vera búin og sona ha ! :D fór svo um kvöldið í bíó á þaddna The Hills Have Eyes  ( hér getið þú/þið lesið allt um hana  http://www.bio.is/index.aspx?groupid=39&FilmId=280  ) en annas er þetta bara mjög svo góð mynd verð ég að segja!! :haha:

Fimmtudagur 27 apríl: Sama og miðvikudagur lítið að gera bara skóli og próf og chill! :D kíkti eikkað á rúntin um kvöldið voða rólegt! :$

Föstudagur 28 apríl: Byrjaði einsog hinir á skóla oooog próf!!! 8| og svo bara chill fór og fékk mér ís í kef mmmm.... :haha: fór svo um kvöldið í Grindavík á styrktartónleika sem haldir voru í Festi handa Sigga frænda sem lenti í hræðilegu slysi fyrir rúmu ári síðan   :cry: já þetta var fyrir hann og fjölskyldu!! :) Það var ekkert smá margir sem mættu á þetta váá ekkert smá flott kvöld í heildina marr... var með tár í augun þaddna fult af fólki að gera gott á eitthvern átt.... en fyrir þá sem vilja sjá mydnir af  þessu kvöldi þá er það hægt hér á nokkrum síðum! :) http://www.grindavik.is/?i=7&s=577                                           http://www.grindavik.is/?i=7&s=578                              http://www.blog.central.is/rosen?page=viewPage&id=794567 

Endilega skoða! :)

29Aprl056.jpg

Svo tók þessi nokkur lög í endirinn ekkert smá flott! :haha:

Laugardagur 29 apríl: Vaknaði fór beint í vinni og var að vinna til 4 og fór svo bara heim að chilla og kíkti svo smá rúnt auðvitað einsog ALLTAF... fékk svo hringingu um að það væri kannksi útkall um kvöldið (er formaður Bjsv Sigurvon í dag hehe ) og fórum ég og Svavar uppí björgunarstöð til að gera bílana tilbúna í að fara á jökull um kvöldið go vrum við á fullu þegar hringt var í mig og sagt að það væri búið að finna mennina þannig þá var bara gengið frá og farið heim að borða! :D fór svo heim til Ellu sys Svavar reyndar líka og þar var eikkað að fólki að sötra nokkra bjóra og var svo lagt af stað í Keflavíkina nánar tiltekið á Traffic þar sem hið heimsfræga Splashpartý var í gangi, og váá það var skohh margt um manninn! :haha: og líka geggjað fjör skohh.. kíkti aðeins á H.inn það var nú ekkert margt þar... en svo var bara farið heim að lúlla! :D

Sunnudagur 30 apríl: Vaknaði fór með Svabba á Mommys fékk mér pitsu fór svo á smá rúnt í góða veðrinu sem var í sandgerði og áhvað að fara í kef að fá mér ís en nei hvað haldið þið það var bara rigning og snjór þar halelúja! fór þá bara heim að hofá Lorf Of The Rings :haha: en um kvöldið fór ég svo í bíó á Scary Movie 4  (lesa um hana hér  http://www.sambio.is/?p=mynd&m=860  ) en já hreynt út sagt SNILDAR MYND!!! :haha::haha: hló ekkert smá mikið skal ég ykkur segja haha! :D en eftir það kíkti ég bara smá rúnt og svo heim að horfá Lorf Of The Rings svo sofa! :D

Mánudagur 1 maí: Vaknað chill smá ís og svo 1maí kaffi í samkomuhúsini rúntað heim borða rúnta heim sofa!! :haha: áhvað að hafa mánudaginn bara stuttan hahaha!!

En allavega takk fyrir mig ;)

Kv.Veigar Þór :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 20:27:23 / Veigar Þór

Já er þetta ekki allt rétt! :D

Áhvað að henda þessu hér inn fynst þetta mjög fyndið haha! :D en allvega njóði haha! :haha:

Kv.Veigar Þór!


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 12:25:23 / Sigurpáll

Brjáluð færsla!

Hér kemur ein allsvakaleg og brjáluð bloggfærsla!

Nei annars nenni því ekki akkurat núna, kannski bara á eftir eða eitthvað, nokkrir punktar.

* Er kominn uppá Laugarvatn
* Hættur í vinnunni
* Er að fara á Akureyri um helgina
* Dimmission næsta föstudag
* Brjálað fjör framundan
* Svo leiðindi og próf
* Það er nóg að læra
* Búinn að gera þennan X-lista hans Veigars :)

Minni ykkur á að lesa ritgerðina um Jóa Brands! Hörku ritgerð! Fékk einkunnina 1,8 af 2 mögulegum og fyrir þá sem ekki nenna að reikna það þá er það 9 á skalanum 1-10.

Nóg í bili,
Kv. Sigurpáll


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 17:38:08 / Veigar Þór

ATH!!!!!

 

 

 

 

ATH..........

Bara að láta ykkur vita að ég var að setja inn upplýsingar um mig og líka sona X lista! :haha: í tenglunum hér til hliðar og vonandi að Sqwabí og Spáll fylgi því og geri það líka fljótlega!

Kv. Veigar Þór. :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 20:05:16 / Veigar Þór

Könnun!

Jæja áhvað að henda héddna inn úrslitum úr síðustu skoðunarkönnun aðeins voru 21mans þátt!!!!!! :haha:

 

 
 
 
 
 

Kveðja Veigar!! :haha:




» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 22:13:25 / svavar

halló allir

Hæhæ ég ákvað að henda inn einni færslu hérna svona í tilefni dagsins og líka vegna þess að Veigar sagði mér að gera það:):) En í dag gott fólk er merkisdagur jú það er 19 apríl og hvað haldiði þennan dag fyrir nákvæmlega 21 ári síðan kom ég í heiminn:):) já þetta er allt voða jótt að líða spáið tuttugu OG eins árs:S:S  en nóg af þessu bulli ég nenni varla að skrifa neitt mikið meira því færslan hjá Veigari hérna á undan er þrusu góð og ég vil ekki vera að skyggja á hana vonandi hafið þið bara haft það gott um páskana og ég vil bara óska öllum gleðilegs sumars og hafið það bara rosa gott:):)

kv Svavar

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 21:32:30 / Veigar Þór

Töff töff töff....

Herru ég fékk þetta í lánið hjá Rúnka bró endilega tékka!! :haha:

Veldu mánuðinn sem þú fæddist:

Janúar: Ég drap
Febrúar: Ég sló
Mars: Ég svaf hjá
Apríl: Ég horfði á
Maí: Ég fróaði mér með
Júní: Ég slefaði á
Júlí: Ég hló að
Ágúst: Ég stakk
September: Ég skaut
Október: Ég naut ásta með
Nóvember: Ég handtók
Desember : Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn:

1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynsæandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. stein
16. Mareli
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Gunnari
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu þriðja stafinn í eftirnafninu þínu: föðurnafninu!!!

A - af því ég elska súkkulaði 
B - af því að mér leiddist 
C - af því að buxurnar mínar voru of þröngar 
D - af því að þarf alltaf að prumpa 
Ð - af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast 
E - af því að hjartað mitt er tveim nr of lítið 
F - af því að ég fékk engar gjafir um jólin 
G - af því mér finnst egg góð 
H - af því að ég er á sýru 
I - af því ég missteig mig 
J - af því ég er með vörtu 
K - af því mér líkar cheer's
L - af því að ég var skökk/skakkur 
M - af því ég var full/ur 
N - af því að mamma sagði mér að gera það 
O - af því ég er hýr 
P - af því ég er einmanna 
Ð - af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast 
R - af því ég er gröð/graður 
S - af því mig langar að deyja 
T - af því ég hata skóla 
U - af því ég þarf að fróa mér 
V - af því að ég elska náttfatapartý 
W - af því að það róar mig 
X - af því að ég elska marmelaði 
Y - af því að ég elska prump 
Ö - af því ég er að safna rasshárum

Endilega skrifið í coment hvað kemur hjá ykkur hehe :haha:

Kv. Veigar Þór sem er alltaf að blogga hér! Sqwabí og Spalli það er komið að ykkur! :klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3